skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Í heilsustefnunni er unnið markvisst með listsköpun á þann hátt að öll börn fá skipulagðar stundir með sérhæfðum kennara 1 sinni í viku. Þessar stundir eru skipulagðar fyrirfram og tengjast bæði þeim þáttum sem prófaðir eru í Heilsubók barnsins og áherslum leikskóla.

Börn hafa ríka þörf fyrir að tjá sig með myndmáli á skapandi hátt. Í markvissri myndsköpun lærir barnið færni sem leiðir af sér að það verður visst um eigin getu. Lögð er áhersla á að sköpunargleði barnanna fái að njóta sín og að sjálft sköpunarferlið skiptir meira máli en útkoman. Boðið er upp á frjálsa myndsköpun á svæði í frjálsa leiknum. Frá 1. maí - 1. október færist vinna barnanna út þar sem unnið er með umhverfismennt samsíða myndsköpun.
Fagstjóri í listasmiðju skipuleggur stutta tónlistarupphitun með hljóðfærum og hljóðfæragerð. Kennari í hreyfisal spilar tónlist af ýmsu tagi tengda æfingum barnanna.