Grænahlíð er önnur af eldri deildum leikskólans. Á Grænuhlíð eru 30 börn á aldrinum 4 - 6 ára. Hér er mikið unnið með frjálsa leikinn. Börnin velja sér svæði til leikja og geta hætt leik og farið í annan þegar þau vilja, einu takmörkin eru fjöldi barna á svæðum.
Í leiknum geta þau valið að leika á deildinni þar sem er úrval leik- og námsefnis, tölva, einingakubbar og heimaland. Í Gjánni geta þau valið holukubba, hlutverkaleik, málörvun og stærðfræði. Einnig stendur þeim til boða að velja sér úrval hlutverkakassa til að auðga leikinn á hvaða svæði sem er. Í Gjánni sameinast þau börnum af Bláabergi. Á sumrin bætist við smíðakrókur þar sem þau smíða frjálst með “alvöru” verkfæri.
Börnin fara reglulega í listasmiðju í hreyfisal í aldursblönduðum hópum. Í listasmiðju fara börnin einu sinni í viku í litlum hópum þar sem unnið er með myndsköpun og tónlist. Í hreyfisal fara þau börn sem eru með 4-6 tíma vistun einu sinni í viku og þau börn sem eru með heilsdagsvistun fara tvisvar sinnum í skipulagða hreyfingu. Börn frá 18 mánaða til 2ja ára taka ekki þátt í skipulögðu starfi og eru mest inni á sinni deild. Með því er lögð áhersla á að þau fái góða aðlögun sem gefur þeim öryggi í leikskólanum.
Hvíldartími er eftir hádegi þegar börnin hlusta á sögu í rólegheitum.
Fastir útiverutímar eru fyrir hádegi og val eftir hádegi á vetrum. Yfir sumartímann eða í umhverfisþemanu eykst útivera mikið þegar farið er út bæði fyrir og eftir hádegi og hreyfisalur og listasmiðja færa nám og leik út. Hreyfisalur fer í útileiki og grenndarkennslu og listasmiðja fer í náttúruskoðanir og matjurtaræktun.
Elstu börnin, sem við köllum 5 ára hóp, taka þátt í verkefni sem við köllum Brúum bilið og er samstarfsverkefni skólanna í Grindavík. Börnin hittast einu sinni í viku þar sem þau fara í heimsóknir í grunnskólann og stofnanir í bænum og vinna verkefni og að hópefli í leikskólanum. Auk þess fara þau í Markvissa málörvun tvisvar sinnum í viku. Sérstök áhersla er lögð á að leikinn sem námsleið og er hugmyndafræði og starfsaðferðir leikskólans lagðar til grundvallar því starfi sem unnið er í 5 ára hóp.
Netfang deildarinnar er: graenahlid.krokur@skolar.is