Í heilsustefnunni er unnið markvisst með hreyfingu á þann hátt að öll börn fá skipulagðar stundir með sérhæfðum kennara 1-2 sinnum í viku. Þessar stundir eru skipulagðar fyrirfram og tengjast bæði þeim þáttum sem prófaðir eru í Heilsubók barnsins og áherslum leikskóla.
Hreyfing stuðlar að líkamlegri og andlegri vellíðan, gleði, snerpu og þoli. Í markvissri hreyfiþjálfun eflist alhliða þroski barnsins og barnið öðlast góða líkamsvitund. Þetta leiðir af sér aukna félagsfærni og leikgleði sem eflir vináttubönd. Frá 1. maí - 1. september lengist útiveran og færast íþróttatímarnir þá út þar sem farið er í leiki og í ýmsar vettvangs- og ævintýraferðir. Fagstjóri í listasmiðju skipuleggur stutta tónlistarupphitun með hljóðfærum og hljóðfæragerð. Kennari í hreyfisal spilar tónlist af ýmsu tagi tengda æfingum barnanna.