Stærðfræði og vísindi flæða í gegnum starfið þar sem leikurinn og hvatningin er alltaf í fyrirrúmi. Deildarstjórar á yngri deildum sjá um að skipuleggja verkefni og þrautir sem unnið er með á yngri deildum. Eldri börn yngri deildanna fara í hópum í stærðfræði aðra hverja viku. Stærðfræðihugtök eru notuð í daglegu starfi og tölur og form eru til að leika með frjálst. Tölur og form eru einnig sýnileg í hæð barnanna.