skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Rauðasel er önnur af yngri deildum leikskólans.  Á Rauðaseli eru um 25 börn á aldrinum 18 mánaða - 4 ára.
 
Mikið er unnið með frjálsa leikinn þar sem ýmis leikefni eru í boði á svæðum og börnin fara á milli eftir áhuga.  Börnin leika sér inni á deild og í Gjánni í holukubbum og hlutverkaleik.  Í Gjánni sameinast þau oft börnum á Gulanesi í leik.  Yngri deildirnar eru með dagskipulag sem sniðið er að þörfum barnanna, þroska þeirra og aldri.

Á yngri deildum er unnið markvisst með könnunarleik og einingakubba.  Elstu börn deildarinnar fara auk þess aðra hverja viku í stærðfræði í borðleikjum.  Í samverustund skiptast börnin í tvo hópa eftir aldri, þar er unnið með það þema sem er í gangi hverju sinni auk þess sem mikið er unnið með málrækt.
 
Þau börn sem eru orðin 2 ára fara markvisst í listasmiðju og hreyfisal.  Í listasmiðju fara börnin einu sinni í viku í litlum hópum þar sem unnið er með myndsköpun og tónlist.  Í hreyfisal fara þau börn sem eru með 4-6 tíma vistun einu sinni í viku og þau börn sem eru með heilsdagsvistun fara tvisvar sinnum í skipulagða hreyfingu. Börn frá 18 mánaða til 2ja ára taka ekki þátt í skipulögðu starfi og eru mest inni á sinni deild. Með því er lögð áhersla á að þau fái góða aðlögun sem gefur þeim öryggi í leikskólanum.

Hvíldartími er milli 12:15-14:00 fyrir þau börn sem sofa.  Þau börn sem sofa ekki fá rólegheit og málörvun t.d. í formi lesinnar sögu milli 12:15-12:45.
 
Yngri börnin fara út fyrir hádegi yfir vetrartímann ef veður leyfir og á sumrin fara þau einnig út eftir hádegi. Þegar veður er mjög gott er einnig farið út seinni part dags. Sú regla hefur þróast á vetrum að allra yngstu börnin fara síðust út og koma fyrst inn.

Netfand deildarinnar er: raudasel.krokur@skolar.is