Leikskólinn er lögum samkvæmt fyrsta skólastigið í menntakerfinu og annast að ósk foreldra nám barna á leikskólaaldri. Foreldrar bera meginábyrgð á uppeldi barna sinna, en leikskólanám er viðbót við uppeldi foreldra, en er á engan hátt ætlað að koma í stað þess. Á þessum grundvallaratriðum byggist foreldrasamvinna. Mikilvægt er að foreldrar þekki kennara barnsins og annað starfsfólk leikskólans og að samskiptin byggist á gagnkvæmri virðingu og trausti.
Meginhlutverk leikskóla felst í því að veita börnum leikskólamenntun, en jafnframt er leitast við að koma til móts við óskir foreldra svo framarlega að það komi ekki niður á gæðum í starfi leikskólans og aðbúnaði og umönnun barnanna og/eða stríði á móti stefnu hans. Dagleg samskipti og upplýsingastreymi eru mikilvægir þættir til að stuðla að jákvæðu og traustu sambandi milli foreldra og leikskóla.
Markmiðið með foreldrasamstarfi er:
- að hafa samskiptin jákvæð umfram allt
- að rækta samvinnu og samskipti leikskólans og heimilanna
- að veita foreldrum upplýsingar um starfsemi leikskólans
- að stuðla að þátttöku foreldra í starfi leikskólans.
Leiðarljós starfsmanna í samskiptum
- Við gefum okkur tíma til samráðs, leggjum áherslu á góðar upplýsingar og skýr skilaboð.
- Við hlustum á aðra og virðum skoðanir þeirra.
- Við heilsumst og kveðjumst, sýnum hlýlegt og vingjarnlegt viðmót.
- Við erum jákvæð og sjáum það besta í öllum.
- Við tökum athugasemdum og ábendingum á jákvæðan hátt og lærum af mistökum okkar.
- Við leggjum okkur fram um að leysa fljótt og vel úr vandamálum. Vandamál eru verkefni til að leysa.