skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

JANÚAR 2008

Efni fundarins:
- Pétur frá SkólUM ehf kom og dregnir voru þrír heppnir foreldrar sem fá niðurfelld leikskólagjöld fyrir einn mánuð. Rætt var um hvort möguleiki sé á að fá vistunartíma til 15:00 á daginn,
lýsing á bílaplani, snjómokstur, hraðahindranir og ókláruð heimasíða voru meðal ábendinga sem komið var til Péturs.
- Bylgja tengiliður stjórnarinnar við leikskólann kom einnig og hitti okkur til að ræða tvö erindi, annars vegar varðandi áfallaáætlun sem er í vinnslu hjá leikskólanum. Var foreldrafélagið beðið um að koma að málum m.a. til að skipuleggja 10 manna hóp foreldra til að bregðast við og aðstoða ef á þarf að halda í leikskólanum ef meiriháttar áföll verða. Hitt erindið var vegna heimsóknardaga foreldra og ættingja í leikskólann eins og t.d. pabba og afa daga eins og gert er í mörgum leikskólum. Rætt var um að hafa frekar almennan heimsóknardag þar sem öll börn ættu möguleika á að fá heimsókn frá einhverjum ættingjum þar sem ekki væri öruggt að öll börn ættu pabba og/eða afa í bæjarfélaginu. Bað Bylgja um tillögur frá foreldrafélaginu um að vera með heimsóknardag frá foreldrum þar sem foreldrar myndu jafnvel sjá um að skemmta börnunum.
- Foreldrafélagið ætlar að kanna áhuga meðal foreldra um kaup á leikskólagöllum frá Henson, listi verður hengdur upp fljótlega.
- Rætt var um að útbúa söngbækur fyrir þau börn sem eru að koma ný inn á leikskólann eins og venja er.

MAÍ 2008

Efni fundarins:
Gallamálin voru rædd. Við fögnum því að það er mikill áhugi á að fá galla.  Sú hugmynd kom upp að þetta árið mundum við bjóða upp á aðra liti í göllunum og síðan yrði þetta þannig að það yrðu bara þessir tveir gallar í boði og það mundi skiptast á 2 ára fresti, þannig að eftir 2 ár yrði blái og guli til en núna blár og rauður. Ástæðan fyrir þessu er að það kemur alltaf upp sú pæling að skipta um lit og fólk hefur talað við okkur um að nú eigi það t.d. galla frá eldri systkinum og væri alveg til í að hafa annan en bara í öðrum litum. Það mun koma auglýsing fljótlega í fataklefa með mynd af nýju göllunum. Verðið á göllunum er 4.000kr með niðurgreiðslu og mun skolar.is (Pétur) borga merkinguna þ.e. nafn barns og logo skólans. Mátun og pantanir  verða væntalega í næstu viku, nánar auglýst síðar. 

Foreldrafélagið hefur lokið því að vinna eftir beiðni Leikskólastjóra að lista með 10 nöfnum foreldra sem verða í áfallateymi leikskólans og hefur Hulda fengið þann lista. Við þökkum þeim foreldrum sem haft var samband við fyrir jákvæð viðbrögð. Við höfðum hugsað þetta svona að það yrði haft samband við efsta mann á lista sem væri alltaf einhver sem er í stjórninni og hann mundi sjá um að boða hina. Ef áfallið tengdist þeim aðila þá yrði haft samband við annan meðlim stjórarinnar sem mundi taka yfir þessu.

Einnig var ákveðið að vorgleðin yrði föstudaginn 30.maí kl.17:00-19:00 (með fyrirvara um veðurspá) með sama sniði og í fyrra þ.e.í Sólbrekkuskógi. Auglýst síðar.

Þar sem þörf var á þá bjó stjórnin til á fundinum söngmöppur sem nemendur skólans fá þegar þeir byrja, þ.e. setti í plöst og möppur.

Fl.ekki gert


Mætt voru

Jóna Rut, Björg Ólöf, Hjörtur, Heiður, Ester, Siggi og Helga.