Ævintýraferðir
10.júní 2010
Í vikunni fórum við í okkar árlegu ævintýraferðir þegar 2005 árgangurinn fór í Selskóg og 2006 árgangurinn fór í Bót. Ferðirnar eru hluti af útinámi skólans. Í skógræktinni okkar, Selskógi, gróðursettum við greniplöntur í reytinn okkar sem er hægra megin við veginn rétt áður er komið er að hliðinu. Eftir gróðursetningu fórum við í ævintýraferðir í skóginum þar sem börnin sáu kanínur, fugla og meira að segja sögðust þau hafa séð úlf. Við fórum í fjallgöngu, tíndum köngla og fundum kanínuholur. Við kveiktum eld, sem við fengum að sjálfsögðu leyfi fyrir hjá Ása slökkvistjóra, og bökuðum snúrubrauð sem runnu ljúft niður. Sjá myndir.
Í fjörunni okkar Bót fórum við í rannsóknarleiðangur þar sem við fundum þara, alls konar kuðunga, skeljar o.fl. Börnin busluðum í sjónum, mokuðum ár og læki, tíndum þara og skoðuðu lífið í fjörunni. Að lokum borðuðu báðir hóparnir hádegismat úti undir berum himni og fengu að sjálfsögðu uppáhaldið... pítu með grænmeti og skinku. Sjá myndir.
Allir voru sammála um að ævintýraferðirnar okkar hafi tekist frábærlega vel og nutum við þess að vera úti í náttúrunni í hæglætis veðri.
.jpg)
.jpg)
Til baka