Íþróttadagurinn
16.júní 2010
Íþróttadagurinn var haldinn í morgun með pompi og pragt. Veðurguðirnir virtust í byrjun ekki ætla að vera okkur hliðhollir en svo rættist úr veðrinu. Dagurinn byrjaði á víðavangshlaupi í fylgd lögreglunnar og var hlaupinn hringur í nágrenni leikskólans. Eftir hlaupið var boðið upp á ávexti og vatn og síðan fóru allir í hreyfileiki og þrautir á útisvæðinu. Um hádegi var grillað og borðuðum við úti í góða veðrinu. Hægt er að sjá myndir frá íþróttadeginum hér.
.jpg)
Til baka