Fagmönnum fjölgar á Króki
3.september 2010
Hlutfall fagmanna á Króki hækkaði verulega í sumar þegar þrír starfsmenn útskrifuðust sem leikskólakennarar. Þetta voru þær Harpa Rakel Hallgrímsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir Hammer og Sæborg Reynisdóttir. Einnig útskrifaðist Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri með Dipl.ed í stjórnun menntastofnana. Óskum við þeim öllum til hamingju með þennan merka áfanga.
Þar með starfa 10 leikskólakennarar við skólann auk íþróttakennara og eru fagmenn í fyrsta sinn síðan skólinn opnaði í meirihluta. Af þessum 10 kennurum byrjuðu sex sem leiðbeinendur við skólann og stunduðu fjarnám meðfram vinnu, einn starfsmaður er enn við nám í menntunarfræðum og þrír leikskólakennarar eru í framhaldsnámi.
Leiðbeinendur sem starfa við skólann hafa rúmlega 6 ára starfsreynslu að meðaltali og hafa á þessum tíma sótt ýmis námskeið um starfshætti í leikskóla og hafa því víðtæka reynslu. Til gamans má einnig geta þess að meðalaldur allra starfsmanna skólans er 38 ár svo við erum á besta aldri!
.jpg)
Frá námsferð starfsmanna til Svíþjóðar í vor.
Til baka