news

19 ára afmæli leikskólans Króks

21. 02. 2020

Þriðjudaginn 5. febrúar héldum við fjölskylduhátíð og höfðum opið hús. Þessi hátíð var í tilefni 19 ára afmælis leikskólans Króks, Dags leikskólans sem var 6. febrúar og Dag stærðfræðinnar sem var 7. febrúar. Áhersla var lögð á að hafa sýnilega stærðfræði- og vísindaleiki. Börn og gestir þeirra fóru um leikskólann og fundu sér leikefni sem þau höfðu áhuga á að skoða, líkt og kubbar, ljósaborð, vatn, slím, seglar og margt fleira spennandi.Í lok hátíðarinnar var boðið upp á brauðbollur fyrir gestina, sem höfðu verið bakaðar í vikunni áður af börnunum, ásamt ávöxtum og grænmeti. Eins og undanfarin ár var mjög góð mæting og þökkum við gestum kærlega fyrir skemmtilegan dag.

© 2016 - Karellen