news

Afsláttur fyrir komandi skólaár

07. 06. 2021

Auglýsing um systkinaafslátt

Foreldrar eru minntir á að sækja um systkinaafslátt fyrir komandi skólaár í gegnum íbúagátt á síðu Grindavíkur. Afslátturinn tekur gildi í mánuðinum eftir að umsókn berst og gildir einungis eitt skólaár í senn, þ.e. 1. ágúst – 31. júlí. Umsóknir frá síðasta skólaári gilda ekki..

Systkinaafsláttur er samræmdur fyrir börn á stofnunum bæjarins og fyrir börn hjádagforeldrum.

Afsláttur vegna annars barns verður 35%.

Afsláttur vegna þriðja barns verður 70%.

Afsláttur vegna fjórða barns verður 100%.


Auglýsing um afslátt fyrir einstæða foreldra og ef báðir foreldrar eru í námi

Einstæðir foreldrar og ef báðir foreldrar eru í námi geta sótt um afslátt af leikskólagjaldi.

Foreldrar eru minntir á að sækja um afsláttinn fyrir komandi skólaár í gegnum íbúagátt á síðu Grindavíkur. Afslátturinn tekur gildi í mánuðinum eftir að umsókn berst og gildir einungis eitt skólaár í senn, þ.e. 1. ágúst – 31. júlí. Umsóknir frá síðasta skólaári gilda ekki.

Gögn sem þurfa að fylgja með eru: Afrit af síðasta greiðsluseðli tryggingastofnunar, er sýni greitt meðlag eða vottorð frá skóla, ef umsækjandi og maki eru í fullu námi.

© 2016 - Karellen