Fjölskyldukaffi og Dagur íslenskrar tungu
05. 12. 2018
Fjölskyldukaffi var haldið í tengslum við Dag íslenskrar tungu sem er 16. nóvember. Gestum var boðið í Gjánna þar sem börnin sungu fyrir gesti og farið var í hugleiðslu. Börnin höfðu bakað smákökur í vikunni á undan sem þau buðu gestum uppá. Eins og undanfarin ár var mæting gesta mjög góð og þökkum við öllum kærlega fyrir komuna.