news

Heilsuleikskólinn Krókur fékk brons hjólavottun

17. 09. 2020

Heilsuleikskólinn Krókur fékk brons hjólavottun sem hjólavænn vinnustaður/leikskóli þegar Sesselja Traustadóttir frá Hjólafærni tók út aðstöðu skólans, hélt fyrirlestur um verkefnið og færði skólastjóra viðurkenningarskjal þess efnis á skipulagsdegi. Markmið verkefnisins er að vinna að bættum ferðavenjum með því að hvetja starfsmenn og foreldra til að ganga eða hjóla í og úr skólanum ásamt því að bæta aðbúnað og þjónustu við hjólreiðafólk. Brons vottunin er fyrsta skrefið að því að fjölga þeim sem velja umhverfisvænan og heilsueflandi ferðamáta og stefnum við að sjálfsögðu á Gullið. Verkefnið samræmist vel heilsu- og umhverfisstefnu skólans og hlökkum við til að taka þátt í því. Íþróttamiðstöðin hefur nú þegar fengið brons hjólavottun og tjaldstæðið fengið vottun sem hjólavænt tjaldstæði og erum við stolt af því að vera í þessum hópi.

© 2016 - Karellen