news

Íþróttadagur Króks 2018

18. 06. 2018

Miðvikudaginn 13. júní héldum við upp á okkar árlega íþróttadag. Dagurinn byrjaði á hefðbundinn hátt með víðavangshlaupi þar sem börn, kennarar og aðrir gestir tóku þátt. Þegar allri voru komnir í mark var fengið sér ávexti og vatn. Búið var að setja upp ýmsar hreyfistöðvar á lóðinni sem börnin léku sér í og var mikið fjör. Eftir alla hreyfinguna og hamaganginn var boðið upp á hamborgara, grænmeti og vatn eða ávaxtadrykk. Vorum við mjög ánægð með daginn og börnin mjög dugleg að hlaupa víðavangshlaupið. Í leikskólanum bjóðum við upp á markvisst hreyfiuppeldi og er íþróttadagurinn einn liður í því. Erum við með því að leggja grunn að líkamlegri, andlegri og félagslegri vellíðan eins og stendur í Aðalnámskrá leikskóla.


© 2016 - Karellen