news

Jól í skókassa

17. 11. 2020

Eins og undanfarin ár tókum við þátt í verkefninu Jól í skókassa. Leitað var til foreldra leikskólabarnanna um efnivið í kassana og færum við foreldrum og börnum miklar þakkir fyrir framlag sitt. Markmið verkefnisins er að fá börn og foreldra til að gleðja börn í Úkraínu sem búa við sjúkdóma, fátækt og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir.

Nú í ár fórum við með 10 fullbúna jóla-skókassa í kirkjuna og ætla starfsmenn þar að koma kössunum áleiðis til KFUM og KFUK. Börnin voru búin að ganga vel frá kössunum og mála þá. Foreldrafélagið tekur þátt í þessu verkefni með okkur með því að borga sendingakostnaðinn við að senda kassana erlendis.


© 2016 - Karellen