news

Klókir litlir krakkar

10. 02. 2020

Námskeiðið Klókir litlir krakkar er fyrir foreldra 3-8 ára barna sem eru í áhættuhópi fyrir að þróa með sér kvíðaraskanir. Námskeiðið miðar að því að fræða foreldra um eðli kvíða og kenna þeim leiðir til að takast á við kvíðahegðun barna sinna og auka sjálfstraust þeirra. Vonast er til að með slíku námskeiði verði hægt að minnka kvíðahegðun barna og í sumum tilfellum koma í veg fyrir að börn þrói með sér kvíðaröskun seinna meir.

Foreldrar verða beðnir um að svara nokkrum spurningalistum fyrir námskeið til að meta stöðu barnsins. Leiðbeinendur námskeiðanna eru sálfræðingar sem eru sérfróðir um kvíðaraskanir barna og hafa staðgóða reynslu af vinnu með foreldrum og börnum.

Námskeiðsgjaldið er kr. 12.500 fyrir foreldra hvers barns. Skráning er hafin og er hjá Ingibjörgu Maríu Guðmundsdóttur sálfræðingi á ingamaria@grindavik.is

Foreldrar verða síðar að staðfesta skráningu með því að fylla út spurningalista fyrir námskeiðið.

Fyrirkomulag

Námskeiðsdagar

Timi 1 fimmtudaginn 20. febrúar kl. 17:00-19:00

Timi 2 fimmtudaginn 27. febrúar kl. 17:00-19:00

Timi 3 fimmtudaginn 5. mars kl. 18:00-20:00

Timi 4 fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00-19:00

FRÍ

Timi 5 fimmtudaginn 26. mars kl. 17:00-19:00

Timi 6 fimmtudaginn 2. apríl kl. 18:00-20:00

Hvert námskeið er 12 klukkustundir og skiptist í 6 skipti, 2 klst. í senn. Námskeiðið er haldið á bæjarskrifstofu Grindavíkur. Fyrstu 4 skiptin eru vikulega, síðan verður viku frí milli 4. og 5. tíma (sjá dagskrá). Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að efnið nýtist hverjum og einum sem best. Milli tíma vinna foreldrar heimaverkefni sem snúa að því að vinna með kvíðaeinkenni barna sinna. Mikilvægt er að foreldrar geti mætt í alla tímana og mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.

© 2016 - Karellen