news

Öskudagur á Króki

19. 03. 2021

Öskudagurinn var haldinn hatíðlegur hjá okkur miðvikudaginn 17. febrúar. Þá komu bæði börn og kennarar í náttfötum í leikskólann og þeir sem vildu fengu andlitsmálningu. Allir hittust svo í sal og byrjuðum við á því að marsera um skólann, svo fengu öll börnin að reyna að slá köttinn úr tunnunni og þegar tunnan loksins gaf sig kom ávaxtanammi út úr henni. Síðan horfðum við á bíó og borðuðum ávaxtanammið. Partýið endaði með pizzuveislu.


© 2016 - Karellen