news

Prjónað á litla fingur og tær

21. 11. 2018

Marta einn eigandi prjónabúðar hér í Grindavík kom og færði leikskólanum vettlinga og sokka sem er afrakstur prjónaverkefnis sem hún og fleiri prjónarar voru með núna í haust. Þessi góða gjöf á eftir að koma sér vel í vetur fyrir börnin ef einhver gleymir vettlingum eða sokkum heima.

Þökkum við Prjónasystrum kærlega fyrir.

© 2016 - Karellen