news

Tannverndarvika Króks

18. 06. 2020

Í febrúar var tannverndarvika og í tilefni af henni var tannheilsa og tannhirða áberandi í starfi leikskólans. Rætt var um hvað er hollt og óhollt, plasttennur bustaðar og gerð ýmis verkefni varðandi tannheilsu. Kennarar brugðu á leik og sýndu frumsamið leikrit fyrir börnin: “Solla og skemmda tönnin” við mikla hrifningu. Börnin fengu heim tímaglas fyrir tannburstun sem er gjöf frá foreldrafélaginu.


© 2016 - Karellen