news

Umferðarvika Króks

25. 05. 2021

Umferðarfræðslan í ár var helguð umferðarmerkjum. Markmiðið var að efla þekkingu og næmni barnanna á umferðarmerkjum sem við þurfum að þekkja til að vera örygg í umferðinni. Sungið, lesið og almenn fræðsla þessu tengt var á deildum og í útinámi. Umferðarskólinn, sem er fyrir elstu börnin, var rafrænn í ár. Lúlli löggubangsi kom með Krissa löggu í heimsókn til okkar og voru þeir félagar með fræðslu, sungu og fengu börnin stimpil á höndina og límmiða.


© 2016 - Karellen