news

Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

03. 04. 2018

Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar, er foreldranámskeið fyrir foreldra 0-7 ára barna. Námskeiðið verður haldið í fundarsal bæjarstjórnar í alls fjögur skipti. Kennt verður dagana 18. og 25 apríl og svo 2. og 8. maí klukkan 17:00-19:00.

Upplýsingar og skráning: ingamaria@grindavik.is

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig er hægt að:

- Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika
- Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni
- Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu
- Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt
- Kenna börnum æskilega hegðun
-Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi

Leiðbeinendur: Sigurlína Jónasdóttir leikskólaráðgjafi og sérkennari og Ingibjörg María Guðmundsdóttir sálfræðingur.

© 2016 - Karellen