skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Áhersluþættir heilsustefnunnar

Hreyfing
Í leikskólanum Króki fær hvert barn markvissa hreyfistund (íþróttatíma) einu sinni í viku og eina til tvær útiverur á dag.  Á sumrin fara hreyfistundirnar að mestu fram utandyra. Dansstundir eru 2 sinnum í mánuði þar sem skipulagðir eru dansar og hreyfisöngvar og ýmiskonar tónlist spiluð með frjálsum dansi. 
  
Listsköpun
Myndsköpun:
Í leikskólanum Króki fær hvert barn markvissa myndsköpunarstund einu sinni í viku frá 2ja ára aldri. Unnið er í aldurskiptum hópum sem auðveldar að bjóða upp á verkefni við hæfi. Lögð er áhersla á að sköpunargleði barnanna fái að njóta sín og að sjálft sköpunarferlið skiptir meira máli en útkoman. Á eldri deildum er efni til listsköpunar í boði í frjálsa leiknum og á yngri deildum er boðið upp á listsköpun í umsjón kennara í frjálsum leik.

Tónlist:
Í leikskólanum Króki skipuleggur kennari í listasmiðju stutta tónlistarupphitun með hljóðfærum og hljóðfæragerð. Kennari í hreyfisal spilar tónlist af ýmsu tagi tengda æfingum barnanna og kennir hreyfidansa með söng. Sameiginlegar söng og dansstundir eru tvisvar sinnum í mánuði. Í samverustundum er hlustað á tónlist, kenndir fjölbreyttir söngvar og dansað. 
 
Næring 
Í leikskólanum Króki er boðið upp á hollan og næringarríkan heimilismat með áherslu á ferskleika og fjölbreytni og að hann sé fallega fram settur. Markmiðið er að auka grænmetis og ávaxtaneyslu og að nota fitu, salt og sykrur í hófi. Matseðlar eru gerðir mánaðarlega og er tekið mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar varðandi næringu barna við gerð þeirra. Þeir eru sýnilegir fyrir foreldra í fataklefum og á heimasíðunni. Fylgst er náið með matarvenjum barnanna með skráningu á þar til gerðum skráningarlista, um hvernig þau borða og eru þessir listar sýnilegir fyrir foreldra daglega.