skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Leikskólanám

Leikskólinn er uppeldis- og menntastofnun, sem byggist á Lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla, sem gefin er út af Menntamálaráðuneytinu. Leikskólinn er fyrsta skólastig barnsins og er leikurinn hornsteinn leikskólastarfsins og aðal kennsluaðferð leikskólakennarans. Leikskólauppeldi er sérstakt uppeldi sem er góð viðbót við heimilisuppeldi, en kemur aldrei í staðinn fyrir það. Foreldrar eru óumdeilanlega aðal uppalendur barna sinna og bera megin ábyrgð á uppeldi þeirra.
Í Aðalnámskrá leikskóla er lögð áhersla á að efla alhliða þroska barnsins, heilbrigða lífshætti og lífsviðhorf, lífsleikni og sjálfstraust þess.
Helstu námssvið leikskólans eru; hreyfing,  málrækt,  myndsköpun,  tónlist,  náttúran og umhverfið,  menning og samfélag og tölvur.  Námssviðin eru áhersluþættir í leikskólauppeldi og eru samofin undirstöðuþáttum leikskólastarfsins.
Í lögum um leikskóla segir m.a. að búa eigi börnum örugg leikskilyrði og hollt uppeldisumhverfi. Að leikskólinn skuli gefa börnum kost á að taka þátt í leik og starfi og njóta fjölbreyttra uppeldiskosta barnahópsins undir leiðsögn leikskólakennara. Að kappkosta eigi í samvinnu við heimilin að efla alhliða þroska barna í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins og leitast við að hlúa að þeim andlega og líkamlega svo að þau fái notið bernsku sinnar.

Stefna heilsuleikskólans Króks

Við erum heilsuleikskóli og kjörorð okkar er “Heilbrigð sál í hraustum líkama”. Markmið heilsustefnunnar er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi. Við vinnum með umhverfismennt sem er auðvelt að tengja heilsustefnunni.
Við leggjum einnig ríka áherslu á frjálsan leik sem byggir á fjölgreindarkenningu Howards Gardners. Markmiðið er að barnið fái góðan tíma í leikinn og velji sér viðfangsefni á eigin forsendum hvað varðar áhuga og úthald. Í daglegu starfi og frjálsa leiknum bjóðum við upp á stærðfræði, vísindi og málrækt þar sem unnið er með aðkeypt og sérhönnuð námsgögn af kennurum skólans, sem leggja áherslu á leikinn sem námsleið. Í Lífsleikni er unnið með jákvæð samskipti, tjáningu, agastjórnun og að bera virðingu fyrir sjálfum sér og umhverfi sínu.

Í skólanámskrá okkar sem er á heimasíðunni, er hægt að kynna sér nánar stefnu okkar og starfsaðferðir.