skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Elstu börnin í leikskólanum

Mikilvægt er að samstarf sé á milli leikskóla og grunnskóla til að stuðla að samfellu í uppeldi og menntun barnsins og að það upplifi grunnskólann sem eðlilegt framhald  af leikskólanum. Formlegt samstarf leikskóla og grunnskóla í Grindavík hófst 1995 og hefur síðan þá verið í stöðugri þróun.

Í leikskólanum Króki hittast elsti börnin, sem við köllum 5 ára hóp, einu sinni í viku. Börnin fara í heimsóknir í grunnskólann og stofnanir í bænum og vinna verkefni og að hópefli í leikskólanum. Auk þess fer skólahópur í markvissa málörvun tvisvar sinnum í viku. Sérstök áhersla er lögð á að leikurinn er námsleið barnsins og að hugmyndafræði og starfsaðferðir leikskólans eru lagðar til grundvallar því starfi sem unnið er í 5 ára hóp. Í maí er farið í útskriftarferð um Reykjanesið og er 5 ára hópur síðan útskrifaður með pompi og prakt viku síðar. Í útskriftinni fá börnin afhent útskriftarskjal, verkefni vetrarins og ljóðabók sem þau hafa samið.  

Markmið:
- að brúa bilið milli leik- og grunnskóla.
- að kenna börnum að vinna í hópi jafnaldra.
- að þjálfa fínhreyfingar æfa rétt grip um blýant og skæri.
- að auka úthald og einbeitingu við verkefnagerð.
- að þau kynnist sínum heimabæ.

Leiðir:
- Samstarf við leikskólann Laut og grunnskólann, sem felst í gagnkvæmum heimsóknum barnanna.
- Verkefnavinna í leikskólanum. Börnin æfa sig í að skrifa nafnið sitt, ýmsar foræfingar, málörvunarverkefni, unnið með fyrsta hljóð í orði og stafirnir kynntir.
- Börnin heimsækja stofnanir bæjarins s.s. heilsugæslustöð, slökkviliðsstöð, bæjarskrifstofur og Víðihlíð.

Markviss málörvun:
- Námsefni sem unnið er markvisst með í samverustundum 2 x í viku.
- Styrkir málvitund barnanna og þjálfar þau hljóðfræðilega.
- Unnið er með hlustun, rím, samstöfur, setningar og orð.
- Lagður er grunnur að lestrarkennslunni og dregið er úr lestrarörðuleikum síðar meir.
- Öll þjálfunin fer fram í gegnum leik.

Kennsluefni sem stuðst er við:
- Ótrúleg eru ævintýrin
- Markviss málörvun
- Ljáðu mér eyra
- Geitungurinn
- Tölum saman
- Ég get lesið
- Wow I´m reading! – Fun activities to make reading happen.

Námsmat (kannanir)
- Hljóm - athugun á hljóð- og málvitund leikskólabarna.
- MOT- hreyfiþroskapróf
- Heilsubókin