skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Lífsleikni
Unnið er að þróun leiðarvísis

Með lífsleikni er átt við hæfni til að takast á við lífið sjálft og má því segja að leikskólanámið sé í raun samfellt lífsleikninám. Til að öðlast lífsleikni þarf barnið að læra umburðarlyndi í samskiptum og að bera virðingu fyrir öðrum og umhverfi sínu. Lífsleikni felst einnig í því að tileinka sér lífsgildi og reglur sem ríkja heima, í leikskólanum og í samfélaginu í heild. 
Í leikskólanum Króki fléttast lífsleikninámið öllum þáttum  leikskólastarfsins. Í samverustundum fara fram umræður um vináttu, ólíka menningu og viðhorf og umburðarlyndi. Á vorönn er sérstakt vinaþema þar sem vináttan og umburðarlyndi er rauði þráðurinn í starfinu.

Lífsleikninám þróað
Verið að vinna að þróun í markmiðum og leiðum í Lífsleikni með áherslu á jákvæð samskipti, tjáningu, agastjórnun og að bera virðingu fyrir sjálfum sér og umhverfi sínu. Aðferðir okkar munu byggja á Lífsmennt sem byggir á 12 alheimsgildum þar sem jákvæð og kærleiksrík samskipti eru í hávegum höfð, Hjálparhöndum sem kennir börnum að nota snertingu á vinsamlegan og áhrifamikinn hátt og Uppbyggingu sem leggur áherslu á sjálfsstjórn, sjálfsaga og að læra af mistökum í samskiptum. Gert er ráð fyrir að gefa út leiðarvísi um lífsleikni á vorönn 2008.