skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Málrækt
Leiðarvísir við námskrá Króks

Tungumálið er mikilvægasta tæki manna til boðskipta. Í frumbernsku og á leikskólaaldri er lagður grundvöllur að málþroska barna og sýna rannsóknir að markviss málörvun í leikskóla er mikilvæg undirstaða fyrir lestrarnám. Segja má að málörvun greinist ekki frá öðrum uppeldisþáttum í leikskólanum.


Markmið
- að málörvunin flæði í gegnum allt starfið í leikskólanum með leikinn sem aðalnámsleið.
- að efla mál- og læsisþroska barna með því að auka orðaforða og hugtakaskilning og efla tjáningu.
- að örva alhliða þroska.

Leiðir 
Fagstjóri í málrækt
Fagstjóri er yfir málræktinni og sér hann um að skipuleggja stundir á valsvæðinu, útbúa verkefni og vera faglegur ráðgjafi.
Vinna í gegnum frjálsan leik og daglegt starf
Málörvunin flæðir í gegnum allt starf leikskólans og er það hlutverk kennarans að vera duglegur að grípa tækifærið og vera meðvitaður um að nám í leikskóla er leikur einn. 
Lestrar hvetjandi umhverfi
Lögð er áhersla á að hafa lestrarhvetjandi umhverfi á öllum deildum. Ritmálið er sýnilegt og hvetjandi byrir barnið og vekur löngun þess að læra að lesa og skrifa. Hillur og leiksvæði barnanna eru merkt með nöfum/orðum, mynd og tákni með tali. Stafir eru aðgengilegir fyrir börnin á ýmsan máta og hafa börnin gott aðgengi að bókum og spilum til málörvunar og hugtakamyndunar á svæðum. 
Í samverustundum
Í samverustundum er málörvun sterkur þáttur. Þar eru lesnar sögur, sungið, kenndar þulur og vísur, farið í ýmsa orða-, rím- og hugtakaleiki, unnið með tjáningu og spjallað saman. Unnið er með námsefnið Markissa málörvun fyrir elsta árganginn 2x í viku og Ótrúleg eru ævintýrin reglulega. 
Í frjálsum valtíma
Í frjálsum valtíma á svokölluðu borðleikjasvæði er unnið með málörvunarleiki og þrautir, sem fagstjóri í málrækt sér um að skipuleggja. Hann útbýr markmið og verkefni í svokallaðan málörvunarkassa, sem kennarar nota í leiknum. Í málörvunartímunum er unnið með eftirfarandi þætti í 1-2 vikur í senn. 
· Hlustun- Þjálfa athygli og einbeitingu sem er mikilvæg undirstaða lestrarnáms.  Það að greina og hlusta á ýmis hljóð er góður undirbúningur fyrir greiningu málhljóða og þjálfun hljóðkerfisvitundar.
· Rím – Að börnin læri að ríma  saman orð.  Rím vekur athygli barnanna á hljóðauppbyggingu orða og er fyrsta  skrefið í þá átt að þau geri sér grein fyrir því að málið hefur ekki aðeins innihald(merkingu) heldur einnig form (Útlit). Rímið eykur einnig málskilning og orðaforða.
· Setningar og orð – Til að brúa bilið milli talmáls og ritmáls þurfa börnin að læra að málið skiptist í smærri einingar. Að kenna nemandanum að tengja saman orð í mismunandi langar setningar.
· Samstöfur – Undirbúningur fyrir greiningu málhljóða, hljóðgreiningu. Orðum má skipta í minni hluta, samstöfur. Orðunum er skipt samkvæmt hrynjandi en ekki í atkvæði samkvæmt íslenskum málfræðireglum.  Börnin finna fjölda samstafa með því að klappa hrynjandina í orðunum.
· Stafir - Að börnin læri að þekkja nafn stafs og hljóð hans(hvað hann segir). 
· Forhljóð – Hljóðgreining, að greina forhljóð, fremsta hljóð í orði. 
· Hljóðgreining – Þegar börnin hafa forhljóðin á valdi sínu má fara að skipta orðunum í einstök hljóð(í-s, f-a-r-a). Byrjað er að æfa tveggja hljóða orð og unnið með sundurgreiningu og samtengingu sem er viðkæmasti en um leið mikilvægasti þátturinn. Hér er lagður grunnur að skilningi barnanna á tengslum hljóðs og bókstafs.  Ef börnin ná þessari heyrnrænu hljóðgreiningu ætti lestrarnámið að veitast þeim 
Markviss málörvun
Unnið er markvisst með námsefnið Markviss málörvun fyrir elsta árgang leikskólans, sem fær tvo tíma á viku, 15 mínútur í senn. Markmiðið er að styrkja málvitund barnanna og þjálfa þau hljóðfræðilega í gegnum leik. Þannig er lagður grunnur að lestrarkennslunni og dregið úr lestrarörðugleikum síðar meir.
Málörvunar hópar
Málörvunar hópar fyrir tvítyngd börn frá 3 ½ árs aldri 1x í viku og þau börn sem koma slök út úr EFI-, HLJÓM- og................prófum, sem hjúkrunarfræðingar, leikskólakennarar og talmeinafræðingar gera.


Kennarinn
Mikilvægt er að kennarinn sé góð fyrirmynd með sinni eigin málnotkun og sé meðvitaður um vandað mál  því svo læra börnin málið að fyrir þeim er haft. Í daglega starfinu er mikilvægt að nota eftirfarandi þætti til málörvunar:
· Skoða bækur og kynna þeim hugtök og lesáttina með puttanum
· Vekja athygli þeirra á sýnilega ritmálinu
· Þjálfa fín- og grófhreyfingar í daglegu starfi
· Bjóða upp á stafi (mjúku púsl, plast osfrv.) í frjálsa leiknum.
· Vekja áhuga á stafrófinu
· Hvetja til samtala á milli barns/fullorðins og barn/barn
· Hvetja til að segja frá liðnum atburðum
· Endursegja sögur
· Leika með rím í daglegu starfi – bullurím er líka skemmtilegt

 
Námsefni
Leikurinn er aðal námsleið leikskólans í málrækt og er því eingöngu stuðst við námsefni sem stuðlar að og hvetur til leiks samfara námi.
Við styðjumst við námsefnið:
· Markviss málörvun
· Tölum saman
· Ótrúleg eru ævintýrin
· Ljáðu mér eyra
· Ég get lesið
· Bækur
· Þulur
· Ljóð
· Spil
· Forrit