skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Stærðfræði
Leiðarvísir við námskrá Króks

Stærðfræðin er eitt af þeim námssviðum sem er stöðugt að fá meira vægi í skólum og er mikilvægt að leikskólinn taki þátt í þeirri þróun. Leikur með stærðfræði er heilaleikfimi sem eflir rök- og stærðfræðigreind auk þess að vera skemmtileg viðbót í frjálsa leiknum og daglegu starfi leikskólans.

Í leikskólanum Króki flæðir stærðfræði í gegnum starfið þar sem leikurinn og hvatningin er alltaf í fyrirrúmi. Lögð er áhersla á leikinn sem aðal námsleið barnsins og að hægt er að lesa stærðfræði úr flest öllu sem við tökum okkur fyrir hendur og því sem við sjáum allt í kring. Unnið er með leikefni sem býður upp á stærðfræðilegar úrlausnir og stærðfræðiverkefnin sem hægt er að leika með frjálst og verkefni þar sem kennari stýrir.

Markmið
- að nota leikinn sem aðalnámsleið barnsins
- að örva alhliða þroska barnsins
- að ýta undir formskynjun og rökhugsun
- að auka hugtaka- og talnaskilning
- að vekja áhuga á stærðfræði
- að læra að lesa stærðfræði úr öllu umhverfinu

Leiðir
Fagstjóri í stærðfræði
· Fagstjóri sér um og ber ábyrgð á skipulagi stærðfræðinnar í leikskólanum. Hann sér um að kynna sér nýjungar, útbúa verkefni og vera faglegur ráðgjafi.
Vinna í gegnum frjálsan leik og daglegt starf
· Stærðfræðihugtök, form og tölur eru notuð í leik og starfi til að auka áhuga barnanna á stærðfræði.
· Grípa tækifærið í dagsins önn því börnunum finnst gaman að telja, leysa gátur og gera tilraunir.
· Vera vakandi fyrir því að spyrja og vekja áhuga barnanna
Stærðfræðileikir- og þrautir á svæðum í frjálsa leiknum
· Boðið er uppá stærðfræði í vali í borðleikjum á eldri deildum þar sem unnið er frjálst og stýrt með margvíslega stærðfræðileiki- og þrautir.
· Á yngri deildum er stærðfræðiverkefnunum stillt upp á borð og þau leika frjálst og/eða 4-6 börnum er boðið í borðleiki í Gjánni í leiktímanum.
· Kennarar skiptast á að vera á svæðum.
Sýnileg stærðfræði
· Hafa form og tölur á veggjum í hæð barnanna og vera með leikefni með tölum og formum
Stærðfræðikassi
· Fagstjóri útbyr kassa með verkefnum og skipulagningu. Lögð er áhersla á að hafa námsefnið fjölbreitt, áhugavert og fyrst og fremst leikvænt.
Vettvangsferðir
· Áhersla lögð á að vekja stærðfræðivitund- og áhuga barnanna í sínu nánasta umhverfi bæði innan- og utandyra.
Einingakubbar og Holukubbar á valsvæði
· Á eldri deildum eru kubbarnir á svæðum í frjálsa leiknum.
· Í kubbaleiknum eru gerðar kröfur um stærðilegar lausnir sem eflir hugtaka- og rúmskilning barnanna
Einingakubbar og Könnunarleikurinn í hópastarfi
· Á yngri deildum er hópastarf einu sinni í viku til skiptis í Einingakubbum og Könnunarleik.
· Í leikjunum eru gerðar kröfur um stærðfræðilegar lausnir.
Stærðfræðiforrit í tölvum
· Á eldri deildum eru 3 tölvur og eru stærðfræðiforrit í þeim sem eru á íslensku, börnin velja frjálst

Stærðfræðinám - alltaf
· Telja allt og alla.
· Leggja saman og draga frá eftir því sem við á.
· Flokka hluti - litir, lögun, stærð og gerð.
· Raða hlutum - í rétta röð, eftir stærð.
· Skoða formin í umhverfi okkar.
· Umsjónarmenn telja borðbúnað svo rétt sé lagt á borð.
· Matartími – hvað margar kartöflur/kjötbollur ætla ég að borða og t.d fyrst fáum við okkur fisk svo kartöflur en tómatsósuna notum við síðast.
· Ávextir; hvað borðaði ég marga, hvað er hægt að skera marga bita úr t.d. epli.
· Fataherbergi – telja tölur á peysum, flokka saman skó/stígvél og vettlinga eða ruglað því saman og para saman.
· Syngja lög/fara með þulur sem innihalda tölur eða talningu.
· Nota sögur og ræða stærðfræði út frá henni – hvað voru margar sögupersónur – hvað voru margir glaðir osfrv.
· Nota/benda á efniviðinn sem til er
· Spila spilin sem til eru.
· Einingakubbar, holukubbar, legókubbar, H-kubbar, perlur, leir, spil, vog, hlutir og svo frv. er góður efniviður til stærðfræðináms.
· Mæla lengd, hæð og breidd.  Nota málband, skó, líkamann eða önnur mælitæki útkoman skiptir ekki máli heldur aðferðin.
· Nota hugtökin sem skipta höfumáli eins og t.d stærri, lengri, minni, minnstur, stærstur, lengstur o.f.l
· Þegar þau eru að teikna er hægt að biðja þau að finna einhver form í myndinni eða spyrja þau hvað eru þau búin að teikna mörg blóm á myndinni o.f.l
· Í fataklefanum fer einnig fram heilmikið stærfræðinám fram, t.d. flokkað skó, föt, talið hvappana o.s.frv.