Vísindi
Í vali í borðleikjum er boðið upp vísindakassa með ýmsum tækjum, tólum og efni til að rannsaka og kanna ýmis fyrirbæri. Þannig sköpum við tækifæri og aðstöðu til tilrauna og athugana barnanna.
Hægt er að , skoða í smásjá og gera tilraunir. Farið er í vettvangsferðir í umhverfisþemanu þar sem náttúran er skoðuð og safnað í vísindakassann ýmsu úr náttúrunni. Verið er að vinna að þróun vísindakassans.
Vísindi í borðleikjum er svæði þar sem hægt er að finna ýmsa náttúrugripi, efni og tæki sem börn geta leikið sér með og notið sér til fróðleiks og ánægju. Barn nýtur þess að sjá t.d. hvernig hlutir festast við segulstál, stækkunargler gerir lítinn hlut stóran og hvernig hitamælir stígur og hnígur. Tilraunir með vatn, heitt, kalt og klaka eru í senn skemmtilegar og lærdómsríkar. Þannig öðlast barn smám saman skilning á náttúrunni og ýmsum fyrirbærum hennar.
Markmið:
· Að börn fái tækifæri og aðstöðu til tilrauna og athugana.
· Að börn geti skoðað eiginleika hluta með eigin augum.
· Að börn öðlist skilning á náttúrunni og ýmsum fyrirbærum hennar.
Leiðir:
Verið er að vinna leiðarvísi í vísindum.