skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Velkomin á heimasíðu Heilsuleikskólans Króks

Leikskólinn var opnaður 5. febrúar 2001 og er sjálfstætt starfandi skóli af Skólum ehf, sem er með þjónustusamning við Grindavíkurbæ. Hér gilda í meginþáttum sömu  reglur og í öðrum leikskólum Grindavíkurbæjar og fylgjum við sömu gjaldskrá. Árið 2003 varð skólinn Heilsuleikskóli, annar í röðinni á eftir Urðarhóli sem er upphafsskóli stefnunnar sem hefur náð töluverðri útbreiðslu á Íslandi. Unnur Stefánsdóttir fyrrverandi leikskólastjóri Urðarhóls og frumkvöðull heilsustefnunnar er nú framkvæmdarstjóri skólasviðs Skóla ehf og er því næsti yfirmaður leikskólastjóra.

Leikskólinn er fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára og er aldurskiptur þannig að 18 mánaða - 3ja ára eru í yngri helmingi og 3ja - 6 ára eru í eldri helmingi. Boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma, þ.e. 4,5,6,7,8 og 9 tíma, og síðan er hægt að kaupa svokallaða opnun og lokun sem er 15 mínútur fyrir og yfir umsamdan vistunartíma.

Hér eru fjórar leikstofur og hér geta dvalið 105 börn samtímis. Gulanes og Rauðasel er fyrir yngri börnin og Grænahlíð og Bláaberg fyrir eldri börnin og eru tveir fataklefar fyrir sitt hvorn helming. Eftir leikskólanum endilöngum er stór gangur, sem heitir Gjáin og er hún sameiginlegt leikrými og matsalur fyrir allar leikstofur.  Í sitt hvorum endanum á Gjánni eru listasmiðja í austurkrók og hreyfisalur í vesturkrók. 

Ákveðið var í upphafi að leggja áherslu á frjálsan leik og heilsueflingu og strax í upphafi lögðum við til grundvallar stefnunni okkar  málsháttinn “heilbrigð sál í hraustum líkama”. Í leit okkar að leiðum til að vinna eftir hugmyndum okkar kynntumst við starfsaðferðum á  Heilsuleikskólanum Urðarhóli og ákváðum að kynna okkur starfsaðferðir Heilsustefnunnar. Haustið 2002 keyptum við afnotarétt að Heilsubók barnsins sem leikskólakennarar á Urðarhóli sömdu og unnum markvisst allt skólaárið að því að undirbúa og aðlaga okkur að heilsustefnunni. 5. nóvember 2003 var leikskólinn formlega opnaður sem Heilsuleikskóli að viðstöddum heilbrigðisráðherra, menntamálaráðherra og fleiri góðum gestum við hátíðlega athöfn. Í febrúar 2008 á 7 ára afmæli skólans steig skólinn 7. og síðasta skrefið í leið sinni að bættri umhverfisstefnu og fékk afhentan Grænfánann, alþjóðlega viðurkenningu fyrir öflugt umhverfis og náttúruverndarstarf.