STARFÁÆTLUN KRÓKS 2011-2012
Samkvæmt aðalnámskrá eiga leikskólar að gera starfsáætlun þar sem fjallað er um árlega starfsemi leikskólans, birt skóladagatal og ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar um skólahald hvers leikskóla. Þar geta einnig komið fram helstu áherslur í foreldrasamstarfi, innra mati, tengslum leikskóla og grunnskóla, stoðþjónustu og fyrirkomulagi öryggis- og slysavarnamála eftir því sem við á. Áætlunin er unnin í nánu samstarfi við leikskólakennara, annað starfsfólk, börn og foreldra.
Unnt er að vinna starfsáætlun þannig að starfsemi síðasta skólaárs sé metin við gerð hennar. Þannig gefst tækifæri til að ræða árlega þá þætti sem þessir aðilar telja mikilvæga og eru ánægðir með og jafnframt þá þætti sem þeir telja að megi bæta. Áætlunin þarf að fá umsögn foreldraráðs áður en nefnd kjörin af sveitarstjórn tekur hana til afgreiðslu samkvæmt lögum um leikskóla.
Leikskóli verður að vera í stöðugri þróun, fylgja straumum og stefnum á hverjum tíma og auka þekkingu og framfarir í leikskólanum til hagsbóta fyrir skólasamfélagið í heild. Þróunarstarf getur m.a. falist í skipulögðum verkefnum sem eiga að leiða til nýbreytni, þróunar og umbóta í leikskólastarfinu. Markmið þróunarverkefnis, tímaáætlun, skipulag og leiðir þurfa að liggja fyrir áður en það hefst. Meta þarf árangur þess, hvort og hvernig markmið náðust og miðla reynslunni með öðrum sem að leikskólastarfi koma (Aðalnámskrá leikskóla, 2011).
Hér að neðan eru tenglar á mat á starfsáætlun síðasta árs og starfsáætlun þessa skólaárs.
Mat á starfsáætlun 2010-2011
Starfsáætlun 2011-2012