Viðburðir heilsuleikskólans Króks
Íslenski fáninn og Heilsufáninn
Íslenska fánanum er flaggað á hátíðisdögum og sér Grindavíkurbær um það. Frá 1. mars til 1. október ár hvert er fána Heilsuleikskólans flaggað.
Afmæli barnanna
Afmælisdagur er stór dagur í lífi allra og er afmælisbarnið sett í öndvegi á afmælisdeginum. Barnið mun hjálpa til við að flagga stóra fánanum frammi í gjánni og svo munum við skreyta deildina með því að hengja upp litla fána inni á deild. Barninu verður boðið að skapa sína eigin kórónu með afmæliskveðju frá deildinni. Afmælisveislan er síðan haldin í samverustund inni á deild þar sem afmælissöngurinn er sunginn og afmælisbarnið velur leik, lög eða annað sem því finnst skemmtilegt. Að síðustu verður boðið upp á ávexti í sérstakri afmælisskál, sem verður skreytt.
Söngstund
Er annan hvern föstudag. Þar hittast öll börn leikskólans og er sérstök skemmtinefnd skipuð 3 starfsmönnum sem sér um stundirnar.
Dansstund
Er annan hvern föstudag. Þar hittast yngri börnin saman og síðan eldri börnin. Dansstundir er skipulagðar af skemmtinefndinni.
Dagur íslenskrar tungu
Er haldinn hátíðlegur ár hvert næsta virka dag á undan deginum sjálfum. Þá er íslenski fáninn dreginn að húni og börnunum kennd ljóð eftir íslensk skáld, sem þau flytja í sameiginlegri söngstund.
Leiksýning
Foreldrafélagið býður börnunum á leiksýningu í leikskólanum að hausti.
Bökunardagar
Eru á haustin þar sem piparkökur voru bakaðar og á vorin þar sem gulrótarbollur voru bakaðar.
Foreldrakaffi
Foreldrum er boðið í kaffi og piparkökur, sem börnin hafa bakað, á aðventunni. Börnin æfa söngva til að sýna foreldrum.
Jólastund
Er haldin næstsíðustu vikuna í desember. Þá fáum við heitt súkkulaði í morgunmat og síðdegishressingu, hangikjöt í hádeginu og svo dönsum við í kringum jólatréð. Leitast er við að hafa þessa stund notalega.
Þorrablót
Er haldið á bóndadaginn og er borinn fram allur venjulegur þorramatur. Maturinn er settur í trog sem matráðar fara með á milli deilda og eru börnin hvött til þess að smakka á öllum tegundum. Í öllum matmálstímum er boðið upp á ekta íslenskan mat.
Afmæli leikskólans
Er 5. febrúar og er hann haldinn hátíðlegur með rjómatertu og söng í matsal með öllum á leikskólanum. Íslenski fáninn er dreginn að húni þennan dag.
Bolludagur
Er haldinn hátíðlegur og borðaðar eru bollur í öll mál.
Sprengidagur
Þá borðum við saltkjöt og baunir í hádegismat.
Öskudagurinn
Er stór dagur í lífi barnanna, þá koma allir í náttfötum og slegið er upp náttfataballi, þar sem við dönsum og “kötturinn” er sleginn úr tunnunni og litlir snakkpokar dreifast um gólfið.
Útileikjadagur leik- og grunnskóla Grindavíkur
Börnin í 5 ára hópum leikskólanna og í 1. bekk grunnskólans hittast og fara í ýmsa leiki og þrautir á íþróttasvæði bæjarins.
Útskriftarferð skólahóps
Farið er í rútu Reykjaneshringinn og markverðir staðir skoðaðir; t.d. Reykjanesviti, brúin milli heimsálfa, o.f.l. Við förum út að borða og endum í Grindavík og borðum íspinna.
Útskrift
Er haldin á sal í maí. Þá koma saman börnin, sem eru að útskrifast fjölskyldur þeirra og kennarar skólahóps og gera sér glaðan dag. Börnin flytja atriði, leikskólastjóri flytur ávarp þar sem hann þakkar börnunum samveruna og óskar þeim velfarnaðar í áframhaldandi skólagöngu þeirra. Þau fá afhent útskriftarskjal ásamt verkefnamöppu vetrarins og ljóðabók, sem í eru ljóð sem þau hafa samið. Að endingu er öllum boðið í rjómaköku.
Foreldrasýning
Er haldin á vorin. Þá er foreldrum boðið í kaffi og gulrótarbollur sem börnin baka og sett er upp sýning á verkum barnanna.
Vorhátíð leikskólans
Foreldrafélagið bíður börnunum og fjölskyldum þeirra á hátíð á leikskólalóðinni. Þar er grillað, farið í leiki og boðið upp á skemmtiatriði.
Fjöruferð
Farið er með rútu í Bót, fjöruna okkar Grindvíkinga með næst elsta árgang leikskólans. Þar kynnast börnin fjörunni og lífinu við sjóinn sem er í næsta nágrenni heimabæjarins. Við borðum hádegismat eftir skoðunarferð og leikum okkur saman áður en haldið er af stað í leikskólann á ný. Foreldrafélagið bíður upp á rútu í þessa ferð.
Sveitaferð
Farið er að Hrauni í Grindavík með þriðja elsta árgang leikskólans. Þar kynnast börnin sveitalífi og fallegri náttúru sem er í næsta nágrenni heimabæjarins. Við borðum hádegismat eftir skoðunarferð og leikum okkur saman áður en haldið er af stað í leikskólann á ný. Foreldrafélagið bíður upp á rútu í þessa ferð.
Íþróttadagurinn
Dagurinn byrjar á víðavangshlaupi í fylgd lögreglunnar og er hlaupinn lítill hringur í nágrenni leikskólans. Eftir hlaupið fá börnin heilsudrykk og ávexti. Eftir veitingarnar er boðið uppá ýmsa hreyfileiki og þrautir á útisvæði.
Opið hús
Við höfum opið hús annað hvert ár þar sem starfsemi leikskólans er kynnt gestum og gangandi.