Grænfánaskóli
Leikskólinn varð Skóli á grænni grein á Umhverfishátíð skólans sem haldin var í tilefni af Degi umhverfisins 25. apríl 2007. Ári seinna var skólinn búin að stíga "skrefin 7", til bættrar umhverfisstjórnunnar og á 7 ára afmæli skólans fékk hann Grænfánann afhentan. Það var fulltrúi Landverndar Sigrún Helgadóttir, sem afhenti leikskólanum viðurkenningarskjal þess efnis að í skólanum sé unnið með góðum ásetningi að virku umhverfisverndarstarfi.
Umhverfismál og verndun náttúrunnar eru mikilvæg í nútíma samfélagi því við eigum bara eina jörð og verðum að ganga vel um hana. Með umhverfisstefnunni okkar viljum við sýna gott fordæmi og kenna börnunum að þau geta haft jákvæð áhrif á umhverfi sitt. Þannig munum við hafa áhrif á að komandi kynslóðir læra að umgangast náttúruna af virðingu. Mikilvægt er að börn upplifi náttúruna af eigin raun og læri að njóta hennar sér til yndisauka. Í leikskólanum er stuðlað að virðingu barnanna fyrir náttúrunni og náttúruvernd og þeim séð fyrir fjölbreyttum möguleikum á að kynnast henni, veðrinu og árstíðunum í fjölbreytileika sínum.