Umhverfissáttmáli Króks
Við í Heilsuleikskólanum Króki viljum með umhverfisstefnunni okkar sýna gott fordæmi og fræða alla í leikskólasamfélaginu um umhverfis- og náttúruvernd og hafa þannig jákvæð áhrif á umhverfi okkar til framtíðar.
Við leggjum áherslu á að tileinka okkur starfshætti umhverfisverndar varðandi innkaup, notkun á orku, vatni og efnum. Við leggjum okkur fram um að flokka lífrænan jafnt sem ólífrænan úrgang til endurnotkunar hér í skólanum og skila til endurvinnslustöðva. Við flokkum lífrænan jafnt sem ólífrænan úrgang sem er annað hvort nýttur hér í sólanum eða sendur í endurvinnslustöðva.
Áhersluþættir okkar næstu tvö ár:
Að efla lýðheilsu í leikskólasamfélaginu með því að tengja heilsustefnuna og umhverfisstefnu skólans betur saman
Að leggja áherslu á holla næringu með öflugri fræðslu
Að efla útinám með áherslu á útiveru, hreyfingu og umhverfisvernd
Að auðga leikumhverfi barnann með áherslu á náttúru- og endurnýtanlegan efnivið
Að vernda náttúruna í heild sinni með því að bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.