skólar.is - Krókur
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Umhverfismennt

Skólinn er búinn að gera umhverfisstefnu sem hefur það að markmiði að börn og starfsfólk læri að vernda og bera virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu. Lögð er áhersla á að bæta umhverfi skólans, flokka og nýta betur úrgang sem frá honum fer og minnka notkun á vatni og orku. Markmið okkar er að umhverfismenntin flæði í gegnum allt starf leikskólans líkt og heilsustefnan og fara þessar tvær stefnur vel saman. Hlutverk kennarans er að vera duglegur að grípa tækifærið, vera góð fyrirmynd og vera meðvitaður um að nám í leikskóla er leikur einn. Sérstakt umhverfisþema er frá apríl til október þar sem áhersla er lögð á ræktun matjurta og blóma, farið í náttúruferðir, grenndarkynningu og íþróttaleiki í nánasta umhverfi.

Markmið
- Að við lærum að þekkja nánasta umhverfi og bera virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu í heild sinni.
- Að vernda umhverfið og náttúruna með því að bæta. umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
- Að bera ábyrgð á meðferð á úrgangi sem frá okkur fer. 
- Að flokkun og endurvinnsla verði sjálfsagður hlutur í leikskólanum.
- Að gera okkur grein fyrir að vatnið er dýrmæt auðlind.
- Að kynnast ræktunarferli með því að rækta grænmeti, jurtir og blóm.

Leiðir 
Umhverfisnefnd 
Sér um stefnumótun í umhverfismálum skólans. Í nefndinni eru; leikskóla- og aðstoarleikskólastjóri, fagstjóri í listasmiðju, ræstingarstjóri, foreldri og börn.
Endurnýting og endurvinnsla
Flokka lífrænan úrgang frá öðru sorpi og setja í moltutunnu og safnkassa. Flokka ólífrænan úrgang, endurnýta í sköpun og leik það sem er nýtilegt, t.d. í könnunarleik, hlutverkaleiki, myndsköðun o.fl. Flokka og setja endurvinnanlegar umbúðir sem ekki eru nýttar í leikskólanum í endurvinnslugám. Sjá um að matarafgangar séu í lágmarki.
Orkunotkun
Hafa slökkt á rafmagnstækjum sem ekki eru í notkun, hafa tölvur á orkusparnaði á vinnutíma. Nota ekki rafmagn að óþörfu t.d. með því að slökkva ljós í herbergjum sem ekki eru í notkun. Tilnefna “slökkvistjóra” á meðal starfsfólks sem sér um að minna alla á mikilvægi þess að slökkva.
Vatnið
Láta vatnið ekki renna að óþörfu og vera með brúsa af vatni í kæli til drykkjar.
Vísindi
Fagstjóri í vísindum sér um að skipuleggja verkefni og þrautir í formi tilrauna með vatn, sand, smásjá, segul , náttúrulegt efni o.fl. í vísindakassa sem notaður er í frjálsa leiknum á borðleikjasvæði. 
Vinna í gegnum frjálsan leik og daglegt starf
Umhverfismenntin flæðir í gegnum allt starf leikskólans og er það hlutverk kennarans að vera duglegur að grípa tækifærið og vera meðvitaður um að nám í leikskóla er leikur einn. Í umhverfisþemanu er unnið dýpra með ákveðnum markmiðum sem sett eru á hverju ári.
Listasmiðja
Börin sjá um að skola fernur, flokka, sjá rotnunarferli, vinna með vatn og sand. Í umhverfisþemanu fara börnin í náttúruskoðunarferðir þar sem þau tína rusl, safna efnivið og vinna úr því listaverk. Þau sá sumarblómum og kryddi í heimatilbúna potta og kartöflum, grænmeti og kryddjurtum í matjurtagarðinn okkar. Fagstjóri í listasmiðju sér um að skipuleggja sáningu og uppskeru í matjurtagarðinum í umhverfisþemanu. Við spáum í veðrið og klæðnaðinn okkar samkvæmt því í samverustund á hverjum degi. Í frjálsa leiknum og í listasmiðju er unnið með vísindi
Í samverustundum
Rætt er um umhverfismennt almenn s.s. veðurfar, náttúruvernd, dýr, fylgst með ræktun ofl.
Í frjálsum valtíma
Í frjálsum valtíma á svokölluðu borðleikjasvæði er unnið með vísindaleiki og þrautir, sem fagstjóri í vísindum sér um að skipuleggja. Hann útbýr markmið og verkefni í svokallaðan vísindakassa, sem kennarar nota í leiknum. Unnið er með tilraunir með vatn, sand, smásjá, segul o.fl. Í umhverfisþemanu er unnið með ræktun á svæði í leikstofu.
Vettvangsferðir
Í umhverfisþema er farið í náttúruferðir þar sem við tínum rusl, fylgjumst með breytingum í náttúrunni og nýtum rusl og náttúruefni til listsköpunar. Farið er í grenndarkynningu og íþróttaleiki í nánasta umhverfi.
Flokkun sorps
Flokkað er í sérstakar merktar tunnur í eldhúsi, deildum, vinnuherbergi og setustofu starfsmanna lífrænan og ólífrænan úrgang, endurnýta það sem ekki er hægt að endurvinna. Flokkunarstöð er í listasmiðju og fara kennarar með börnin þangað að flokka sorp frá deildum. 
Dagur umhverfisins
25. apríl er alþjóðlegur dagur Umhverfisins. Í þeirri viku eru sérstök hópverkefni skipulögð og börn, starfsfólk og foreldrar hvött til að taka þátt og vera meðvitaður um náttúruvernd.

Kennarinn
Mikilvægt er að kennarinn sé góð fyrirmynd og hafi það hugfast að svo læra börnin sem fyrir þeim er haft.
· Að tileinka sér umhverfisstefnu skólans og hugmyndafræði um verndun náttúrunnar
· Að læra að flokka og kenna börnunum það í leiðinni
· Að fara vel með eigur leikskólans og henda aldrei neinu að óþörfu
· Nota báðar hliðar pappírs
· Nota ekki rafmagn að óþörfu t.d. með því að slökkva ljós á þeim svæðum sem enginn er inni í og slökkva á rafmagnstækjum sem ekki eru í notkun
· Láta vatn ekki renna að óþörfu
· Vera vakandi fyrir tækifærum til að kenna börnunum um umhverfismennt
 
Námsefni
Leikurinn er aðal námsleið leikskólans og er því eingöngu stuðst við námsefni sem stuðlar að og hvetur til leiks samfara námi.
Við styðjumst við upplýsingar og bæklinga frá heimasíðum s.s.:
· Landvernd
· Grænfáninn
· Heimurinn minn - leikir og fróðleikur
· Risaeðlur
· Hafrannsóknarstofnun
· Umhverfisstofnun 
· Vísindavefurinn
· Sorpa

1. - Grindavík mars 2007
2. - Grindavík febrúar 2008