news

Dagur læsis á Króki

28. 09. 2022

Dagur læsis er 8. september ár hvert en Sameinuðu þjóðirnar Unesco gerðu þennan dag að Alþjóðlegum Degi læsis árið 1966. Markmið með deginum er að fólk alls staðar úr heiminum er hvatt til að skipuleggja læsis- og lestrarviðburði.Í ár héldum við uppá daginn með því að bjóðatil okkar nemendum úr 8. bekk Grunnskóla Grindavíkur til að lesa fyrir okkur.Nemendurnir stóðu sig vel og var frábært að fá aftur heimsókn frá þessu hressa unga fólki því síðastliðin tvö ár höfum við ekki getað boðið nemendum frá grunnskólanum í heimsókn til okkar. Þau lásu fyrir börnin og spjölluðu við þau auk þess sem þau kíktu á börn sem þau þekktu í leikskólanum. Þetta samstarf við grunnskólann er okkur mjög mikilvægt og þökkum við kærlega fyrir okkur.

© 2016 - Karellen