news

Fjölskyldu útiverustund

10. 10. 2018

Þar sem þróunarverkefnið Komdu út er komið af stað hjá okkur langar okkur að fara út saman. Markmiðið með þróunarverkefninu er meðal annars að kynna margþætta möguleika sem nánasta umhverfi bæjarins hefur upp á að bjóða og skoða hugmyndir að útivist og samveru með fjölskyldunni í frítímum.

Því er tilvalið að skella sér í stuttan göngutúr með okkur laugardaginn 13. október n.k.. Gengið verður frá Heilsuleikskólanum Króki kl. 11:30 og er áætlað að gangan taki um 60-90 mínútur.

Hlökkum til að sjá ykkur!

© 2016 - Karellen