news

Heldri borgarar baka með Stjörnuhópi

19. 12. 2018

Í vetur eins og undanfarin ár höfum við verið í samstarfi við Miðgarð í Víðihlíð. Við heimsóttum þau í október og komu þau til okkar í desember og við bökuðum saman piparkökur. Eftir baksturinn sungu börnin tvö lög fyrir gestina „Við erum vinir“ (Blær) og jólalagið „jólasveinar ganga um gólf“. Síðan borðuðum við afraksturinn með heitu súkkulaði og rjóma. Markmiðið með þessum heimsóknum er að brúa bilið milli kynslóða, njóta samvista og læra hvert af öðru. Við þökkum heldri borgurum fyrir komuna og þessa dásamlegu samverustund.



© 2016 - Karellen