news

Sumarhátíð foreldrafélagsins

07. 06. 2018

Sumarhátíð foreldrafélagsins var haldin þriðjudaginn 5. júní og heppnaðist mjög vel. Börnin léku sér með foreldrum sínum á útisvæðinu og fengu andlitsmálningu. Einnig var Fjórhjólaleigan með Buggy bíl á staðnum og fóru hring með þau sem vildu og vakti það mikla kátínu meðal spennuþyrstra leikskólabarna. Listaverkasalan vakti mikla athygli en þar voru glæsileg listaverk barnanna til sölu gegn frjálsum framlögum til foreldrafélagsins svo hægt verði að gera meira fyrir börnin. Að lokum var skiptidótamarkaður haldinn í fyrsta skipti og vakti hann mikla lukku, en þó nokkur börn mundu eftir að koma með dót sem þau voru hætt að nota og enn fleiri sögðust ætla að taka þátt næst.


© 2016 - Karellen