Velkomin á Rauðasel.

Rauðasel er ein af tveimur yngri deildum leikskólans. Á Rauðaseli eru börn á aldrinum 18 mánaða - 3 ára. Mikið er unnið með frjálsa leikinn og það leikefni sem er boðið upp á er hlutverkaleikur, stærðfræði- og vísindatengt efni eins og ýmiskonar kubbar, efni tengt sköpun og slökun. Unnið er markvisst með könnunarleik, Tónmál og kyrrðarstundir inni á deild. Börn frá 18 mánaða til 2 ára eru mest inni á sinni deild, með því er lögð áhersla á að þau fái góða aðlögun sem gefur þeim öryggi í leikskólanum.

Í Gjánni er boðið upp á hlutverkaleik og leik með holukubba auk þess sem boðið er upp á málörvun í borðleikjum. Í Gjánni sameinast þau börnum af öðrum deildum í leik.

Hreyfing og listsköpun tvinnast inn í starf deildarinnar, ýmist í skipulögðum hópum eða frjálsu vali.

Í samverustund er meðal annars farið yfir dagatal, sungið, farið í leiki, lagt inn Lubba hljóð eða lesinn bók. Fyrir hádegismatinn eru gerðar núvitundaræfingar og hvíldartími er eftir hádegisverð fyrir öll börn. Skipulögð útivera er á hverjum degi.

Netfangið á Rauðaseli er raudasel@skolar.is

Hér má sjá dagskipulag yngri deilda

© 2016 - Karellen