Skólar ehf., einkarekið fyrirtæki í skólarekstri er rekstraraðili Heilsuleikskólans Króks og er með þjónustusamning við Grindavíkurbæ. Skólar ehf. var stofnað árið 2000 og sér um rekstur fjögurra leikskóla. Þeir eru auk Króks; Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi, Ungbarna Heilsuleikskólinn Ársól í Reykjavík og Heilsuleikskólinn Skógarás í Reykjanesbæ.

Einkunnarorð Skóla ehf. eru "heilbrigð sál í hraustum líkama" og stefnir fyrirtækið að því að verða leiðandi í þekkingu og aðferðafræði heilsueflandi leikskólastarfs með heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins að leiðarljósi.


© 2016 - Karellen