news

Forvarnarvika

07. 12. 2022

Dagur gegn einelti er 8. nóvember ár hvert. Hér á Heilsuleikskólanum Króki höldum við árlega forvarnarviku tengda þessum degi og höfum gert síðan 2017. Við erum að vinna allan veturinn með forvarnarverkefnið Vináttu sem Barnaheill gefur út og í forvarnarvikunni eflum við ennþá meira vinnuna með verkefnið. Þetta forvarnarverkefni er gegn einelti og fyrir börn frá 0-9 ára. Við nýttum námsefnið sem fylgir verkefninu, m.a. lásum söguna Bangsinn hennar Bínu, sungum lögin og notuðum nuddhefti og samræðuspjöld sem fylgja með efninu. Á þriðjudeginum 8. nóvember var skrifað STOPP í lófann á börnunum til að kenna þeim að rétta lófann fram og segja stopp við því sem þau vilja ekki að sé gert þeim eða vinum þeirra. Bangsinn Blær er táknmynd þessa verkefnis og eiga öll börn sinn bangsa sem huggar og styrkir þau. Í lok vikunnar fengu börnin heim veggspjald frá Barnaheill sem sýnir hvernig hægt er að búa umhverfi og heimili barna á sem öruggastan hátt. Einnig erum við alltaf með stærri Blæ bangsa staðsettan í Gjánni hjá okkur og hjá honum er hægt að sjá það gildi sem við erum að vinna með hverju sinni. Nú erum við að vinna með gildið Virðing. Hægt er að lesa meira um Vináttuverkefnið hér.

© 2016 - Karellen