news

Þorrablót Króks

25. 01. 2023

Á föstudaginn síðastliðinn, 20. janúar, héldum við hátíðlega upp á bóndadaginn með þorrablóti í leikskólanum. Til að fagna deginum komu öll börn og kennarar saman í salnum okkar til að hafa gaman saman og halda upp á gamla tímann. Hver deild hafði æft atriði til að sýna hinum og voru sungin lög saman. Einhverjir mættu í þjóðlegum fatnaði eins og lopapeysu og lopasokkum.Í vikunni höfðu börnin útbúið höfuðföt fyrir bóndadaginn og kynntu sér ýmislegt tengt gamla tímanum. Við lékum okkur með leikefni eins og bein, skeljar, leggi, ull o.þ.h. Allir fengu svo að smakka á þorramat eins og slátri, hákarli, sviðasultu, harðfiski og súrmat. Flestir voru til í að smakka en misjafn var hvort maturinn rann ljúft niður. Við höldum árlega upp á þennan viðburð og er alltaf jafn gaman hjá okkur á þessum degi.

© 2016 - Karellen