Umferðarvikan 2023
07. 06. 2023
Vikuna 9. -13. maí var umferðarvika hjá okkur í Heilsuleikskólanum Króki. Í ár var vikan helguð reiðhjólum og hjálmum. Markmið var að efla þekkingu og næmni barnanna fyrir hættum og reglum sem þarf að kunna til að geta verið öruggari á hjóli í umferðinni. Sungið, lesið og almenn fræðsla þessu tengt var á deildum og í útinámi. Krissi lögga kom með Lúlla löggubangsa í heimsókn og voru þeir félagar með fræðslu, sungu og gáfu börnunum límmiða.